katrinog.bloggar.is
Aldrei hefđi mig grunađ....Katrín Ósk
..að ég af öllum mundi fara á James Blunt tónleika og vera líka svona heilluð! Ég var svo ekki að getað þolað manninn eftir you´re beautiful nauðgunina þarna um árið sjáið til! Svo virtist hann vera svo helvíti vælinn!En svo hafði ég nú líka verið að hlusta á hin lögin hans bara í útvarpinu og fannst reyndar goodbye my lover alveg geðveikt, er nú reyndar alltaf alveg að fara að grenja þegar ég heyri það ;) En svo breyttist eitthvað álitið þegar að ég sá þátt um hann um jólin og hann var að fara til Kosovo þar sem að hann hafði verið þegar hann var í breska hernum.
Síðan var hann líka í Top Gear og þá vann hann bara alveg hellling á, svona líka fyndinn og alls ekkert að væla neitt! Sunnudaginn fyrir tónleikana var svo endursýndur þátturinn um Kosovo og á mánudeginum bara VARÐ ég að fara á tónleikana. Gat svoleiðis ekki hugsað mér að missa af þeim og við systurnar ákváðum að skella okkur.
Það var sumsé farið á honum Brúnó sem að var með dularfull hljóð í öxulhosunni. Mjög skemmtileg ferð hjá okkur systrum. Það eru sko margir að vinka manni ef að maður keyrir niður laugaveginn í svona drossíu, það vantar ekki! Skoðuðum myndirnar af leikskólabörnunum og tókum mynd af Emmu Karen.
Tónleikarnir voru í nýju laugardalshöllinni og hófust stundvíslega á auglýstum tíma. Eins gott að við systurnar drifum okkur á svæðið því að við reiknuðum með upphitunarbandi og vorum alvarlega að spá í að fá okkur kríu í Brúnó eftir að hafa étið yfir okkur á Sbarro. Svo kom hann James minn á sviðið og var nú ekki alveg að fá viðeigandi móttökur því að það hafa ábyggilega ekki allir fattað að þetta væri ekki upphituninn. En jæja, þrátt fyrir að tónleikarnir fóru hægt af stað þá náði kauði upp alveg frábærri stemningu og virtist mjög hrærður og hissa á öllu uppklappinu sem að hann fékk! Ég var náttúrulega alveg að missa það í goodbye my lover en náði að halda kúlinu..
Er núna alveg svakalega heilluð og ætla svoleiðis að kaupa báða diskana... Eða bara stofna aðdáendaklúbb ![]()
jæja langt síðan að ég hef bloggað og hef síðan þá loksins loksins klippt á mér hárið og er líka svo svakalega ánægð með það. Ætla aldrei aftur að safna hári!
Er líka byrjuð að selja Herbalife fyrir þá sem að hafa áhuga á því. Er með kynningu á húðvörunum á sunnudagskveldið kl.8:30 þið megið alveg koma ![]()
Kveðja K
Drullugir dansar og grenjuskjóđan!Katrín Ósk
Gróf upp úr fórum mínum eina gamla uppáhaldsmynd, þ.e dirty dancing með Patrick Swayze og Jennifer Gray. Alveg gat ég horft á þessa mynd endalaust... Tók saman nokkrar góðar vemmumyndir sem alltaf er hægt að glápa á:
* Dirty Dancing
* Cry Baby
* Notting Hill
* Love Actually
* Dazed and Confused (reyndar ekki vemma)
* Bridget Jones (ellllllssssskaaaa hana)
* Mermaids
* Pretty Woman
* My best friends Wedding
Svo er bara spurnig hvernig Sex and the city myndin heppnast :)
ábyggilega einhverjar fleiri... munið þið eitthvað??
Svo þættir.....
* Sex and the City (auðvitað)
* friends (klassískt)
* Scrubbs
* Ugly Betty
* Desperat housewifes
* Beverly Hills (varð að hafa það með)
svo líka allir góðu glæpaþættirnir sem að ég nenni ekki að telja upp hér!
Hvað finnst ykkur???
K
Nú er vetur úr bć....Katrín Ósk
Hverjum datt það í hug að hafa sumardaginn fyrsta í apríl? Það hlýtur að hafa verið einhver misskilningur í gangi þegar það var ákveðið.... Yfirleitt er skítkalt og allir að drepast út kulda...
Nóg um það!
Í gær gerðist ég íþróttalega sinnuð og fór út að skokka! Það var nú frekar erfitt þar sem að formið er upp á sitt versta þessa dagana.. en ég hafði þetta af og var líka svona spræk á eftir. Hefði alveg verið til í að halda áfram. Verð að fjárfesta í æfingagræju! Hver á svoleiðis? og kannski æfingadýnu!
Í dag ekki eins spræk. Er með strengi.
Samt svakalega gott og frískandi ![]()
Ætla með börnin Kormákshlaupið á morgun. Hef ekki mætt á svæðið síðan ég var næst síðust í mark c.a 7 ára gömul... Sjáum hvernig fer.
Emma Karen er mjög spennt og ætlaði að æfa sig í leikskólanum í dag. Minntist ekkert á æfingar þegar að hún var sótt heldur var mömmunni tilkynnt að Valgeir væri kærastinn hennar! Hvaða strákastúss er þetta eiginlega? Hvað með kormákshlaupið? Þetta byrjar snemma!
óverandát
K
BEAUTIFUL ONES međ SUEDEKatrín Ósk
Djöfull er þetta uppáhaldslagið mitt!!! Var að horfa á myndbandið á youtube um daginn og fannst ég vera komin aftur í 10. bekk. Nánar tiltekið í eftirsetu og ég og Elísa að spila á luftgítar við þetta lag.....
talandi um eftirsetu, er það ennþá brúkað nú til dags? Okkur var alveg skítsama að þurfa að sitja eftir. Gátum alveg eins hangið þarna eins og einhversstaðar annarsstaðar. Vorum líka oftast í góðum félagsskap Jóa, Ella og Sölva...
Svo 10 árum síðar er maður bara í foreldrafélagi leikskólans og er eitthvað að rembast við að vera fullorðin
hahahahaha........
Var að reyna að troða inn hérna link inn á lagið en það er víst ekki í boði. Mæli eindregið með að allir kíki á þetta og taki léttan luftgítar með ![]()
Annað líka skemmtilegt og ofur hallærislegt er ELO. usss ef að þeir koma manni ekki alltaf í gott skap!
K
p.s Var að gera vísindalega uppgvötun um sjálfa mig. Með nákvæmum mælingum og útreikningum hefur komið í ljós að það hefur ekki tognað úr mér síðan að ég var fermd! Öll herlegheitin hljóða upp á 155 cm!
Mér finnst ég ekki vera svona lítil en þetta er vísindaleg rannsókn, með málbandi og allt!
Ţetta er snilld...Katrín Ósk
Varð að setja þetta hér inn.... spurning um hvorum flokknum maður tilheyrir???Þekkir þú fínar dömur og alvöru konur í sundur? Fínar dömur: Ef þú hefur ofsaltað matinn sem þú ert að elda, þá skaltu setja kartöflu í pottinn. Hún dregur saltið í sig. Alvöru konur: Ef þú ofsaltaðir matinn er það bara assgoti pirrandi. Fínar dömur: Það er auðvelt að lækna höfuðverk með því að skera límónu í sundur og nudda henni á ennið. Alvöru konur: Taktu límónu og blandaðu henni við tekíla og salt og drekktu.Höfuðverkurinn hverfur sennilega ekki, en þér verður alveg sama. Fínar dömur: Ef þú setur sykurpúða í botninn á vöffluformi, þá lekur ísinn ekki í gegnum það. Alvöru konur: Sjúgðu bara ísinn úr vöffluforminu. Þú liggur hvort eð er örugglega með fæturna upp í loft í sófanum og borðar hann. Fínar dömur: Þú getur komið í veg fyrir að kartöflur spíri með því að setja epli í pokann með þeim. Alvöru konur: Kauptu karföflumúspakka, hann geymist í heilt ár í eldhússkápnum. Fínar dömur: Kökur fá jafna, slétta áferð ef þú penslar þær með eggjahvítu áður en þær fara í ofninn. Alvöru konur: Betty Crocker segir ekkert til um penslun á kökunni. Slepptu þessu bara. Fínar dömur: Ef þú átt erfitt með að opna sultukrukku er gott að setja á sig gúmmíhanska. Þannig færðu betra grip.. Alvöru konur: Biddu myndarlega, ríka og einhleypa nágrannann um að opna krukkuna! Fínar dömur: Ekki hella afgangs rauðvíni. Það má frysta í ísmolabakka og nota í sósur seinna. Alvöru konur: Hvað er afgangs rauðvín? Gaman að þessu..... | ||
ţorrablót..borraţlót..Katrín Ósk
Við hjúin skelltum okkur á blótið. Tengdó og Olga Katrín komu að norðan til að passa krakkana. Brunaði reyndar heim eftir skemmtiatriðin til að gefa litla unganum að drekka og fór svo aftur á ballið. Blótið var hin besta skemmtun. Við sátum með Hófý og Jóa í borðhaldinu og vorum bara í frekar góðum sætum á framsta bekk. Maturinn var góður, allavegana það sem að ég setti á minn disk. Þó að ég sé nú ekki matvönd get ég bara ekki fengið það af mér að láta súrmat inn fyrir mínar varir *bjakk* Get ekki einu sinni drukkið appelsínu safa sem að er búin að vera opin í ísskápnum í 2 daga. Get nú samt étið hákarl þangað til að manninum mínum fer að blöskra og segir að ég fái dr**** ef að ég hætti ekki að troða í mig
Ballið var líka ákaflega skemmtilegt og það var mikið dansað og tjúttað en lítið djúsað.. þó mín hafi allvevegana drukkið 3 flöskur af pepsi max
Gott blót í alla staði en saknaði nú hennar Hillu minnar! En þegar við hjúin vorum að skakklappast út ómaði hið gamalkunna lag.... and I would walk 500 miles...
Þarf að segja meir mín kæra
Kv. K
JólinKatrín Ósk
voru rooooooosalega útblásin!Síðasti dagur ársins og ekki úr vegi að blogga örlítið! Bara lítið samt :)
Kannski meir á komandi ári, hver veit! Vil bara óska þeim fjölmörgu lesendum mínum (right) Gleðilegs nýs árs og þakka það gamla...
Veit ekki um hina en ég verð allavega frekar tilfininnganæm um áramótin og fæ nettan kökk í hálsinn. sniff... svo margs að minnast.. man bara ekki neitt í augnablikinu...
Kveðja K
spennó!!!!!Katrín Ósk
skírn næsta laugardag og fullt að gera
Allir að vera spenntir!!!
meira seinna...
Kveðja K
allir ađ kíkja...Katrín Ósk
Litla er komin með síðu á barnalandi undir Stúlka Katrínar og Kjartans! Um að gera að kíkja og allir að skrifa í gestó! Síðan er í vinnslu þannig að hún á kannski eftir að breytast oft...
Endilega kíkja á hina krógana líka, þau eru ekki af verri endanum![]()
Annars gengur allt vel... sú litla er mjög dugleg að drekka og þyngjast og er orðin 4800grömm ![]()
Miklu stærri en systkini hennar voru þegar að þau voru 2 vikna. Reyndar líka stærri þegar hún fæddist.
Bráðum fer maður nú að fara með hana út, þá verður Ísak glaður því að hann er að morkna úr leiðindum
inni.
nóg í bili...
K
p.s. Þeir sem að eiga eftir að koma í heimsókn og nota það sem afsökun að vera ekki búin að kaupa neitt, þá vil ég bara segja að það kostar ekkert inn að skoða :) og drullið ykkur í heimsókn ![]()
